
Á fallegum vordegi leit lítið hestfolald dagsins ljós. Það var mosótt á litinn og með stjörnu í framan. Þessi litli höfðingi var ég herra Litli Mosi.
Ég man ekki mikið sjálfur eftir fyrstu klukkustundum lífs míns, en mamma mín segir mér reglulega söguna af því þegar ég reyndi að komast á fætur í fyrsta skipti. Hún skemmtir sér alltaf konunglega yfir þeirri sögu..... það var víst mjög fyndið..... En vissir þú að folöld standa á fætur innan við klukkutíma frá því þau fæðast og geta stuttu síðar gengið, hlaupið um og leikið sér?




Þegar ég var búinn að sortera fæturna mína uppgötvaði ég að ég get notað þá á mismunandi hátt. Mamma sagði mér frá gangtegundum sem hver hestur er með, en við íslenskir hestar eru einnig með tölt og skeið sem aðrir hestar hafa ekki stjórn á. Ég þurfti strax að prufa...






Fet
Brokk
Stökk
Tölt
Skeið
Svo fæddust fleiri og fleiri folöld í haganum okkar og ég fékk fullt af leikfélögum.

Við vorum flest mismunandi á litinn og með mismunandi merkingar. Vissir þú að enginn hestur í heiminum er alveg eins ? Ég er því alveg einstakur íslenskur hestur.

Brúnn
Rauður
Rauðblesóttur
Leirljós
Bleikálóttur
Vindóttur
Jarpur
Bleikskjóttur
Þegar við lékum okkur öll saman meiddum við okkur stundum og þurftum að fá mömmuknús. En við þurftum að vita hvar meiddið okkar var. Það er því gott að vita hvað líkamshlutar okkar heita ef eitthvað fer úrskeiðis í líkamanum. Veist þú hvar nefið mitt er?
